
við heilsuðum nýju ári 2008 á akureyri og byrjuðum strax í fyrstu viku ársins að leita okkur að húsnæði. við skoðuðum nokkrar íbúðir staðsettar um allan hafnarfjörð og m.a. eina á hjallabraut, viku síðar skoðuðum við hana aftur og gerðum tilboð og aftur viku síðar skrifuðum við undir kaupsamning. í millitíðinni komumst við að því að ég var eigi kona einsömul heldur bar ég barn undir belti. þetta var því afar viðburðaríkur janúarmánuður. sameiginleg afmælisgjöf foreldra minna (í lok janúar og byrjun febrúar) var oggulítil samfella sem þau fengu að geyma fyrir okkur eftir að hafa fengið fréttir um væntanlegan afkomanda.
sverrir vann ötullega að mastersritgerðinni sinni, fór í marga langa göngutúra og kortlagði gönguleiðir ferðamanna um miðborgina og útlistaði kosti og galla hverrar leiðar fyrir sig. þannig opnaði hann augu mín allavega fyrir skipulagsleysi í borginni og hversu margt er ábótavant. var ég orðin vel skóluð í fræðunum og skreytti mig með fagmáli við hvert tækifæri. eða ekki. í lok maí varði hann verkefnið sitt með glæsibrag og útskrifaðist.
félagslífið á vinnustaðnum mínum var blómlegt sem aldrei fyrr. þorrablót í febrúarbyrjun, hópefli í marsbyrjun, konukvöld í marslok, árshátíð í apríl, tiltektardagur í maí … ég tók að mér hlutverk söngkonu í Enn einu bandinu sem lék á árshátíðinni og þótti bandið afar vel heppnað, sérstaklega þegar litið var til æfingafjölda - eða fæð öllu heldur, þar sem æfingarnar urðu aðeins þrjár.
í apríl fengum við loks afhenta íbúðina okkar og vörðum öllum okkar stundum við málningarvinnu og þvíumlíkt og fengum aldeilis góða aðstoð við það frá ættingjum og vinum, sem sömuleiðis fylktu liði og hjálpuðu til við flutningana ekki löngu síðar. það voru þreyttir kollar sem lögðust á koddann 19. apríl eldsnemma kvölds, um kl 22, akkúrat þegar nágrannarnir á neðri hæðinni höfðu boðið til innflutningspartýs. það kom þó ekki að sök og sváfum við vært okkar fyrstu nótt í Firðinum.
við fórum nokkrum sinnum norður á árinu, í bústað og í útilegu en ágúst var með eindæmum viðburðaríkur. þá fórum við að sjá eric clapton á tónleikum, tæpri viku síðar fórum við í vegagerðarferð, komum heim rétt til að láta niður í tösku því ferðinni var heitið norður í víðidal. þar fórum við í afmælisveislu sem var uppfull af hæfileikafólki, hljóðfæri á staðnum sem gestir gripu í eftir hentugleika og hljómsveit sem söng lag um kremkex með súkkulaði. í lok maí tók ég þátt í gæsun berglindar vinkonu minnar en þau hugi giftu sig í júní með pomp og pragt á ákaflega fallegum degi. við fórum í ekki síðra brúðkaup norður í Reykjadal sem var talsvert frábrugðið því fyrrnefnda, því trumbusláttur réð ríkjum fyrir hina látlausu athöfn sem haldin var utandyra.
ekkert varð af utanlandsferðum þetta árið en í staðinn fórum við að sjá Bob Dylan þegar hann spilaði í Laugardalshöll og síðan sáum við Eric Clapton í Egilshöll í ágúst. það tók nú ansi mikið á veglegan kviðinn að standa upp á endann í þrjá tíma en mikið lifandis ósköp var það samt gaman.
eftir því sem áætlaður fæðingardagur barnsins nálgaðist fór þreytan að segja til sín en þó vann ég allt þar til ég var gengin 39 vikur. allan tímann hafði ég nefnilega verið handviss um að ganga fram yfir, og ég var gangsett þegar ég var komin 13 daga fram yfir. fæðingin gekk stórslysalaust fyrir sig en tók nokkurn toll af mér þar sem ég missti 2 lítra af blóði eða um 40% blóðmagns líkamans. árangur erfiðisins var dásamleg lítil stúlka sem var skírð í lok október og hlaut nafnið Brynhildur Daðína.
Brynhildur Daðína fæddist sama dag og FH-ingar urðu Íslandsmeistarar í fótbolta í fjórða sinn á fimm árum og það var stoltur afi sem sá um að tilkynna fjölskyldunni um nýjasta FH-inginn.
mánuðirnir þrír sem í kjölfarið komu hafa liðið á einhvern undarlegan hátt, allir dagar eins, ekkert að gerast en þó svo undur margt. litla skinnið er með magakveisu og fær krampaköst á kvöldin þar sem hún engist um og hágrætur en þar fyrir utan er hún ákaflega brosmild og dafnar vel.
litla fjölskyldan hélt jólin saman í fyrsta sinn hér heima og fengum við foreldra okkar í mat. það var virkilega notalegt en verður sennilega talsvert öðruvísi næstu jól þegar sú stutta verður farin að gera ýmislegt annað en að liggja kyrr.
við tökum nýju ári fagnandi og hlökkum til allra þeirra spennandi “fyrstu” hluta sem munu gerast næstu mánuðina.
Gleðilegt nýtt ár! 